Gauraflokkur Vatnaskógar hlýtur verðlaun
Gauraflokkurinn í Vatnaskógi hlaut verðlaun er Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent í gær. Gauraflokkurinn sem Skógarmenn KFUM bjóða uppá eru sumarbúðir fyrir 10-12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir og hefur verið í boði síðan 2007. Gauraflokkurinn hlaut verðlaun [...]
AD Fundur í kvöld
Fundur Aðaldeildar KFUM Efni:Með hvaða hugarfari höldum við út í daginn? - Nálægð Guðs og gildi hugsjóna sr. Friðrik Stjórnun: Sigurbjörn Þorkelsson Upphafsorð: Arnar Ragnarsson Efni: Hermann Gunnarsson (Hemmi Gunn.) Hugvekja: Sr. Guðni Már Harðarson
Aðalfundur Vinagarðs – leikskóla KFUM og KFUK, kl. 20
Aðalfundur Vinagarðs - leikskóla KFUM og KFUK verður haldinn í kvöld kl. í Vinagarði. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsfólk er hvatt til að taka þátt í fundinum og láta sig málefni Vinagarðs varða.
Aðalfundur Vindáshlíðar!
Aðalfundur Vindáshlíðar verður haldinn þriðjudaginn 16. mars næstkomandi kl. 20.00 að Holtavegi 28. Venjuleg aðalfundarstörf. Konur sem óska eftir að gefa kost á sér í stjórn hafi samband við Guðrúnu Kristjánsdóttur á netfangið: gkrist@hi.is
Ný stjórn í Kaldárseli
Aðalfundur Kaldársels var haldinn í gærkvöldi og var þátttaka afar góð. Á fundinum voru venjuleg aðalfundarstörf og kosið var í nýja stjórn en alls voru 7 í framboði. Kjörin voru: Björn Þór BaldurssonJón GuðbergssonJón Grétar ÞórssonSigrún Lilja Guðbjörnsdóttir Í stjórn [...]